Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir segir swing-menninguna vera svo mikla á Seltjarnarnesi að íbúar þar hafa búið til sérstakt merki til að gefa merki um að viðkomandi stundi svokallað swing-partí eða makaskipti eins og það hefur verið kallað á íslensku.
Auður segir frá þessu á Twitter. Hún segir Seltirninga setja ananas í körfuna sína í Hagkaup á Eiðistorgi til að gefa merki um að hann eða hún sé til í swing-partí.
„Umhyggjusöm vinkona: Ef þú setur ananas í körfuna þína á ákveðnum tíma í Hagkaup úti á Nesi, þá gefurðu merki að þú sért til í makaskipta-partí. Það er víst svo mikið swing-að á Nesinu!,“ skrifar Auður.
Umhyggjusöm vinkona: Ef þú setur ananas í körfuna þína á ákveðnum tíma í Hagkaup úti á Nesi, þá gefurðu merki að þú sért til í makaskipta-partí. Það er víst svo mikið swing-að á Nesinu!
— Auður Jónsdóttir (@audurjonsdottir) January 4, 2020