Leikkonan og fyrirsætan Pamela Anderson og framleiðandinn Jon Peters giftu sig á mánudaginn. Í frétt Independent kemur fram að þau hafi látið pússa sig saman við litla athöfn í Malibu.
Undanfarið ár hafa þau Anderson og Peters átt í ástarsambandi en þau voru líka par í skamman tíma á níunda áratugnum eftir að þau kynntust í Playboy-höllinni í Los Angeles. Sambandið gekk hins vegar ekki upp og kennir Peters aldursmuninum meðal annars um en hann er 22 árum eldri en hún. Núna, rúmum 30 árum síðar, eru þau orðin hjón.
Anderson og Peters hafa látið lítið fyrir sér fara síðan þau tóku upp þráðinn að nýju en Peters staðfesti við The Hollywood Reporter að þau væri orðin hjón og að hann hafi alltaf viljað vera með Pamelu síðan hann kynntist henni fyrst. „Núna eftir 30 ár, þá skiptir aldursmunurinn ekki eins miklu.“
Bæði Anderson og Peters hafa verið gift fjórum sinnum áður.