Ekki fer á milli mála að Jón Ásgeir Jóhannesson er einn snjallasti viðskiptamaður íslenskrar verslunarsögu, þótt fólk geti deilt um ýmsar aðferðir hans. Jón er auðvitað heilinn á bak við Bónus og þar með Baug, ásamt föður sínum, Jóhannesi heitnum Jónssyni.
Í hruninu tapaði hann nær öllu, ef marka má frásögn hans í frægri bók Einars Kárasonar og stóð nánast strípaður eftir. En nú er aftur kominn vindur í seglin og Jón Ásgeir fer með himinskautum með olíufélagið Skeljung, sem nú heitir Skel og er fjárfestingafélag í anda FL-Group og Baugs. Bensínstöðvar félagsins eru allar kafmálaðar í bleikum lit, þeim sama og einkenna Bónusgrísinn, svo ekkert fer á milli mála hvar þær eru staðsettar og peningarnir streyma inn sem aldrei fyrr. Gamli útrásarvíkingurinn er með gamalkunnum aðferðum á góðri leið með að ná vopnum sínum á ný …