Elísabet Bretadrottning stillti sér upp með syni sínum Charles Bretaprins og eiginkonu hans Camillu, hertogaynjunni af Cornwall, við athöfn þar sem haldið var upp á Garter-þjónustuna.
Drottningin sem er 96 ára gömul klæddist silfurhvítum slopp en stafurinn vakti þó mesta athygli. Athöfnin fór fram í St George‘s Chapel en hefðbundin ganga, Garter Knights and Ladies, um lóð Berkshire-kastalans er ávallt haldin áður en athöfnin hefst. Drottningin tók ekki þátt í göngunni að þessu sinni en hefur hún glímt við veikindi upp á síðkastið og gengur nú með staf. Þrátt fyrir það, var drottningin viðstödd hádegisverðinn og festingarathöfnina sem fór fram á bak við tjöldin.