Nýjasti slagari meistarans var að líta dagsins ljós og heitir I Follow You. Herbert hyggst slá til formlegs útgáfuteitis á fimmtudaginn 16. júní 2022.
Tónlistamaðurinn Herbert Guðmundsson, söngvari, lagasmiður, útsetjari, útgefandi og framleiðandi á eigin tónlist segir að nýjasti lagið sé í anda 80′ slagara. Allar götur síðan hann kom fyrst fram á sjónarsviðið upp úr 1970, þá söngvari með ýmsum hljómsveitum hefur hann verið afkastamikill í íslensku tónlistarlífi.
„Ég vann lagið í samvinnu við Halldór Á. Björnsson (LEGEND), Hlyn Sölva Jakobsson (DJ) og Lukas Hillebrand (Austurríki) sem sér um hljóðblöndun og masteringu en hann sá einnig um þá vinnu á laginu „Með stjörnunum“. Lagið er dans track í 80’s andanum þar sem kominn var tími til þess að gera eitt svoleiðis track.“