- Auglýsing -
Einn allra besti sjónvarpsmaður Íslands, Gísli Marteinn Baldursson, er ekki á flæðiskeri staddur. Gísli er einn eigenda Kaffihúss Vesturbæjar sem hagnaðist í fyrra um tæplega 5 milljónir króna. Gísli Marteinn og félagar áttu þó erfitt uppdráttar í Covid, eins og fjölmargir aðrir, því árið á undan var tapið rúmar 6 milljónir króna. Nú hafa þeir rétt úr kútnum og það hefur orðið viðsnúningur. Félagar sjónvarpsstjörnunnar í rekstrinum eru Pétur Marteinsson knattspyrnukappi og Einar Örn Ólafsson, stjórnarformaður Play. Þáttur Gísla Marteins, Vikan, er í sumarleyfi þessa dagana en mun snúa aftur af krafti þegar haustar …