Bandaríski rapparinn The Game fékk sér húðflúr í gær sem er helgað minningu körfuboltagoðsagnarinnar Kobe Bryant sem lést í þyrluslysi 26. janúar.
Rapparinn deildi mynd af nýja flúrinu á Instagram með myndatextanum „forever“ eða „að eilífu“ á íslensku.
Nýjasta húðflúr rapparans, talan átta, gæti ekki verið á meira áberandi stað en það er beint fyrir ofan vinstri augabrún hans. Bakvið áttuna er þá eilífðartákn.
Með tölunni átta vísar hann í treyjunúmer Bryant en Bryant spilaði í treyju númer átta þar til hann skipti yfir í treyju númer 24 árið 2006.