„Það er stundum sagt að dropinn holi steininn og ég held að það eigi alveg sérstaklega við í þessu máli. Hér eru tímamót í þessum málum og ég vil fagna því alveg sérstaklega hvað það er mikil samstaða um þessar breytingar í þinginu,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra, við atkvæðagreiðsluna.
Brugghúsdagurinn
Bruggarar eru himinlifandi með áfangann en vona að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í átt að frjálsum áfengismarkaði á Íslandi.
Bjór og annað áfengi hefur aldrei mátt kaupa neins staðar á Íslandi nema í ríkinu. Það er að segja ef menn vilja taka það með sér heim og njóta þess þar.
Næstu mánaðamót verður breyting á þessu en með lögum sem Alþingi samþykkti í gærkvöldi verður sala áfengis heimil frá framleiðslustað; öllum brugghúsum sem framleiða minna en 500 þúsund lítra á ári. Það gildir um öll smærri brugghús landsins nema Kalda eins og staðan er í dag.
Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði loksins loksins, opnast glufa í þá átt að afnema einokun ÁTVR. Hildur vill kalla daginn brugghúsdaginn.
„Ég ætla að leyfa mér að segja að ég held að af þessu tilefni ættum við að ákveða að fimmtándi júní eða jafnvel sextándi júní eftir atvikum, verði haldinn hátíðlegur eins og við höfum haldið uppá bjórdaginn frá 1. mars 1988 og kalla hann brugghúsdaginn, sagði Hildur Sverrisdóttir á Alþingi í kvöld.
Innleiða breytingar í takt við nýja tíma
Jón sagði að samþykkt frumvarpsins markaði tímamót. Frumvarp dómsmálaráðherra um að heimila sölu áfengis á framleiðslustað, var samþykkt sem lög frá Alþingi í kvöld með 54 samhljóða atkvæðum. Frumvarpið öðlast gildi 1. júlí næstkomandi.
Jón sagði ljóst að löngu tímabært væri að endurskoða núgildandi löggjöf og innleiða breytingar.
„Þær breytingar sem orðið hafa í okkar samfélagi og í kringum okkur gera kröfu til þingsins um að axla þá ábyrgð að innleiða hér breytingar í takt við nýja tíma.“