„Þetta er algjört adrenalínkikk,“ sagði leikkonan Lena Dunham um frumraun sína á tískupallinum en hún gekk á sýningu 16Arlington á tískuvikunni í London á föstudaginn.
„Ég verð að segja, það var dekrað við mig í dag. Allar stelpurnar [fyrirsæturnar] hlupu um og skiptu um föt í snatri, en hér var fólk á öllum tímapunktum að segja mér hvað ég átti að gera og hvert ég átti að fara. Ég var mjög heppin að því leyti,“ sagði Dunham í viðtali við Vogue.
Dunham kynntist Marco og Kikka, hönnuðunum á bak við 16Arlington, í gegnum stílistann sinn og er mikill aðdáandi þeirra. „Ég hef gaman af því að klæðast því sem er svolítið fyndið. Og það er það sem ég elska við Marco og Kikka, þau hanna flíkur sem fara manni svo vel en eru með húmor.“
Hún bætti við að hún myndi nú örugglega ekki fá mörg atvinnutilboð út á frammistöðu sína en sagði að hún hefði skemmt sér vel á sýningunni.