- Auglýsing -
Förðunarmeistarinn Harpa Káradóttir segir frá því í Instagram-færslu að fjölskyldan hennar er að stækka en hún og kærasti hennar, Guðmundur Böðvar Guðjónsson, eiga von á tvíburum.
„Í dag erum við þrjú á heimilinu, bráðum verðum við fimm. Við Guðmundur eigum von á eineggja tvíburum í sumar,“ skrifar Harpa á Instagram.
Harpa á eina dóttur frá fyrra sambandi. Hún rekur förðunarskólann Make-Up Studio.