Netverjar eru margir hverjir að tapa sér yfir að sonur leikarans John C. Reilly sé fyrirsætan Leo Reilly. Leo og 21 árs og hefur notið nokkurra vinsælda í tískuheiminum undanfarið. Hann er sonur John C. og framleiðandans Alison Dickey.
Leo er nokkuð vinsæll á samfélagsmiðlum en hingað til hefur fólk almennt ekki lagt tvo og tvo saman og áttað sig á að um son John C. sé að ræða.
Þegar blaðamaður Huffington Post vakti athygli á þessum fjölskyldutengslum á mánudaginn fóru samsettar myndir af þeim feðgum sem eldur um sinu á Twitter og öðrum samfélagsmiðlum.
Það er varla hægt að segja að þeir feðgar séu líkir en margt fólk hefur bent á að Leo sé frekar líkur Freddie Mercury, söngvara Queen.
https://www.instagram.com/p/B9C1Ll_n1Ca/