Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna umferðarslyss í Kópavogi í gærkvöldi. Þar hafði ökumaður keyrt yfir gangbraut án þess að verða var við tvo drengi sem komu akandi á rafskútum.
Báðir drengirnir óku á hlið bifreiðarinnar með þeim afleiðingum að þeir duttu af hjólunum. Sem betur fer sluppu drengirnir án meiðsla og var forráðamönnum þeirra gert viðvart. Seinna um kvöldið stöðvaði lögregla þrjá ökumenn sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum vímuefna. Kemur fram í dagbók lögreglu að nóttin hafi að öðru leyti verið heldur róleg.