Föstudagur 27. desember, 2024
3.8 C
Reykjavik

Skotmaðurinn kominn út úr húsinu og hefur verið handtekinn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Einstaklingurinn sem grunaður er um að hafa skotið á kyrrstæðan bíl úr fjölbýlishúsi er nú kominn út úr húsinu og hefur verið handtekinn. RÚV greinir frá þessu.

Um er að ræða fjölbýlishús í Miðvangi í Hafnarfirði. Sérsveitin fór inn í húsið í morgun og var mikill viðbúnaður á svæðinu. Leikskóla í nálægð við húsið var lokað og foreldrum barst tilkynning um að börn þeirra væru örugg inni í skólanum.

Hjá RÚV kemur fram að skotmaðurinn hafi komið út úr húsinu um tuttugu mínútur yfir tólf. Hann var þá handtekinn og færður niður á lögreglustöð. Í hádegisfréttum RÚV kom fram að formleg rannsókn málsins gæti nú hafist og að hvað úr hverju yrði dregið úr lokunum á vettvangi, en leiðir til og frá leikskólanum voru til að mynda lokaðar.

Það var eigandi bílsins sem skotið var á á bílastæði sem tilkynnti um málið í morgun. Á þriðja tug lögreglumanna kom að aðgerðunum.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -