Útgöngubannið sem er í gildi í mörgum löndum Evrópu reynist ýmsum þungbært og fólk tekur upp á öllu mögulegu til að reyna að gera það léttbærara.
Myndband þar sem ónafngreind bresk húsmóðir syngur og leikur sína útgáfu af I will survive, sem við þekkjum öll í flutningi Gloriu Gaynor, hefur síðastliðna daga tröllriðið internetinu og fengið fólk til að veltast um af hlátri, enda með því fyndnara sem finna má á netinu á þessum síðustu og verstu innilokunartímum.
Hækkið í botn og syngið með, það mun örugglega gera daginn léttbærari enda geta væntanlega flestar mæður samsamað sig þeirri upplifun sem textinn lýsir þessa dagana. Og ekki spillir fyrir að hin ónafngreinda móðir er ekkert að halda aftur af sér í túlkuninni.