Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna umferðaróhapps í gærkvöldi. Þar hafði drengur á vélhjóli, ekið á móti umferð, með þeim afleiðingum að hann hafnaði framan á bifreið. Ökumaður vélhjólsins reyndi strax að setja hjólið aftur í gang og gerði sig líklegan til þess að flýja af vettvangi. Kom í ljós að drengurinn var fimmtán ára gamall og án ökuréttinda. Kemur fram í dagbók lögreglu að forráðamaður drengsins hafi verið upplýstur um málið og tilkynning send til barnaverndar.
Brotist var inn á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Lögregla mætti á vettvang og handtók skömmu síðar mann sem grunaður er um innbrotið. Sá var í annarlegu ástandi, hafði stolnar vörur í fórum sér og var með sár á höndunum. Var hann fluttur á Landspítala. Síðar um nóttina barst lögreglu tilkynning um annað innbrot, að þessu sinni í lyfjaverslun í Garðabæ. Vitni sá mennina hlaupa af vettvangi og inn í bifreið. Lögregla fann bifreiðina skömmu sienna og handtók þjófana.