Flutningabifreið og bifhjól rákust saman seint í gærkvöldi á Hafnarfjarðarvegi. Áreksturinn átti sér stað skömmu fyrir miðnætti og var ökumaður bifhjólsins fluttur á bráðamóttöku. Ekki er vitað um ástand hans að svo stöddu.
Fyrr um kvöldið handtók lögregla karlmann sem grunaður er um líkamsárás. Þolandinn hafði forðað sér af vettvangi stuttu áður og var með minniháttar áverka. Þá stöðvaði lögregla þrjá ökumenn en allir eru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Auk þess aðstoðaði lögregla nokkra aðila sem voru mjög ölvaðir. Bæði lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á vettvang þar sem maður datt af rafskútu. Maðurinn fékk aðhlynningu eftir óhappið.