Afmælisbarn dagsins er enginn annar en Hreimur Örn Heimisson, poppsöngvari með meiru. Telja árin hans nú fjóra áratugi og fjögur ár til viðbótar.
Hreimur sló rækilega í gegn í lok síðustu aldar með hljómsveit sinni Land og synir en einnig hefur hann sungið og spilað með böndum á borð við Föroingabandið, Sexappeal, Eins og hinir, Richter og nú síðast Made in sveitin. Þá hefur Hreimur einnig gefið út sólóefni, keppt í Eurovision með Vinum Sjonna og flutt gríðarlega vinsæl þjóðhátíðarlög, svo eitthvað sé nefnt.
Mannlíf heyrði í Hreimi og spurði hann hvort og þá hvernig hann ætlaði að halda upp á afmælið.
„Dagurinn byrjaði nú ekki vel,“ sagði Hreimur og hljó. „Ég kastaði upp klukkan tvö í nótt. Ég veit ekki af hverju, sennilega eitthvað sem ég borðaði. Annars hefur dagurinn verið bara mjög fínn, er búinn að fá afmælisgjöf frá konunni og börnunum og spila svo upp á Skaga í kvöld, á útitónleikum með Gunna Óla og Siggu Beinteins. Já og svo gaf ég út lag á miðnætti. Fyrsti singúllinn af næstu plötu hjá mér. Lagið heitir Sólin er sest og finnst á Spotify.“
Framundan er frábært sumar hjá Hreimi en hann mun sennilega skemmta á öllum úti- og bæjarhátíðum landsins.
„Það er svo mikið framundan, ég er á Kótilettunni um næstu helgi, Græna hattinum þar næstu helgi, svo er það Þjóðhátíðin og Þórsmörk í byrjun ágúst og Flatey í ágúst og Ljósanótt. Tónleikar úti um allt.“
Mannlíf óskar Hreimi innilega til hamingju með afmælið!