Afmælisbarn þessa mánudags er söng- og leikkonan dáða frá Neskaupstað, Katrín Halldóra Sigurðardóttir. Er hún þrjátíu og þriggja ára einmitt í dag.
Þekktust er Katrín Halldóra fyrir túlkun sína á söngkonunni Elly Vilhjálms í Borgarleikhúsinu en einnig hefur hún sungið inn á nokkrar plötur og sent frá sér sólóplötu með lögum Jóns Múla Árnasonar. Þá hefur hún einnig starfað með tónlistarfólki á borð við Pál Óskar Hjálmtýsson, Bubba Morthens og fleiri.
Mannlíf bjallaði á afmælisbarnið og spurði hvort og þá hvernig ætti að halda upp á daginn.
„Ég er að fara til vinkonu minnar núna í morgunmat og svo ætla ég að fagna með fjölskyldunni í kvöld,“ svaraði Katrín glöð í bragði.
En hvað er fram undan hjá afmælisbarninu?
„Ég er nú bara í sumarfríi. Ég ætla að fara bæði norður og austur.“
Aðspurð hvort hún ætlaði ekkert til útlanda, sagðist Katrín vera nýkomin þaðan.
„Ég er nýkomin frá Barcelona, var þar í viku. Það var alveg yndislegt.“
Mannlíf óskar Katrínu Halldóru innilega til hamingju með afmælið!