Veðurstofan varar við miklu hvassviðri, víða um land, í dag. Ferðalangar eru minntir á að slíkt veður getur verið varasamt ökutækjum með aftanívagna og þeirra sem taka á sig mikinn vind. Háskalegt getur verið að draga á eftir sér stór hjóhýsi.
Ferðamenn og útivistarfólk sem hyggst fara á hálendið er beðið um að fara varlega og fylgjast með veðurspám.
Á vef Veðurstofunnar segir: Snýst í suðvestan og vestan 10-18 m/s, en hvassari suðaustantil og mið-Norðurlandi. Rigning eða skúrir, en þurrt að mestu austanlands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austfjörðum.