Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, er á höttunum eftir nýju starfi. Vigdís hrökklaðist úr borgarstjórn í hruni Miðflokksins. Hún gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Tími hennar í borgarstjórn var markaður ryskingum við embættismenn og aðra borgarfulltrúa. Klögumálin gengu á milli og sannkölluð óeining ríkti í ráðhúsinu. Þar er nú komin á nokkur ró.
Vigdís er lögfræðingur og menntuð sem blómaskreytingamaður. Víst er að hún á fjölda atvinnutækifæra á þeim sviðum. En hugur hennar leitar aftur inn í bæjarmálin. Hún vill meira og hefur sótt um að verða bæjarstjóri í Hveragerði. Gárungar í bænum segja ekki ábætandi skjálftavirknina í bænum þó Vigdís mæti ekki til að hrista upp í bæjarlífinu. Sáralitlar líkur eru á því að hún hreppi hnossið. Orðrómur hefur verið uppi um að hún ætli að snúa aftur í Framsóknarflokkinn …