Nokkuð sérstækt umferðaslys átti sér stað á bensínstöði í Breiðholti í gærkvöldi. Þar barst lögreglu tilkynning um að ökumaður bifhjóls hefði misst stjórn á krossara.
Það varð til þess að maðurinn rann undir kyrrstætt ökutæki við bensíndælu. Starfsmaður bensínstöðvarinnar og viðskiptavinur náðu að losa ökumann bifhjólsins. Hann var þá með meðvitund en var svo fluttur á Bráðadeild.
Ekki er vitað um meiðsli mannsins
Þetta var ekki eina óvenjulega slysið í nótt. Einnig óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð lögreglu í nótt vegna tjóns af völdum rafmagnshlaupahjóls. Lögregla segir að sá sem ók hjólinu sé grunaður um að stjórna því undir áhrifum fíkniefna.