Rétt fyrir hálf tíu í gærkveldi barst ákall til lögreglu vegna dauðdrukkins manns á skemmtistað í miðbænum. Illa gekk að stugga við manninum sem á endanum var leiddur út af lögreglu sem af góðsemi ætlaði að koma honum til síns heima. Ekki gekk að skutla manninum heim svo hann var færður í fangageymslur og fær að gista þar til rennur af honum.
Tveir voru gómaðir við hraðakstur í gær í hverfi 103. Mældist hraði þeirra vel yfir leyfilegum hámarkshraða, sem var 80 kílómetrar á klukkustund. Ætla má að þeir hafi verið að flýta sér en mældist sá sem hraðast fór á 124 kílómetra hraða.
Þó nokkrar tilkynningar bárust lögreglu í gær vegna innbrota og eignarspjalla á heimilum og fyrirtækum.
Laust fyrir klukkan hálf sjö í gærkveldi barst lögreglu tilkynning um ólæti þriggja einstaklinga á veitingastað í efra Breiðholti. Þurfti lögregla að mæta á staðinn og vísa þessu taumlausa tríói út.