Langferðabílstjóri lenti í vandræðum með farþega sem læsti sig inni á salerni rútunnar og missti þar meðvitund vegna ölvunar. Atvikið varð þegar umræddur maður og félagar hans voru að fara í Leifsstöð. Um var að ræða stuðningsmann knattspyrnuliðs sem var á leið til síns heima. Bílstjórinn óskaði eftir aðstoð lögreglu við að koma manninum til meðvitundar. Það tókst en þá var flugvél fótbultabullunar farin á loft og hann var strandaglópur. Maðurin hélt sína leið eftir að hafa verið kominn úr óminnisástandinu. Óljóst er hvernig hann komst heim.
Afskipti höfð af ofurölvi eldri konu á reiðhjól í austurborginni. Konan harðneitaði að gefa lögreglu upp kennitölu eða dvalarstað. Hún var því svipt reiðhjólinu, handtekin og færð á lögreglustöð. Ástand hennar var þannig að hún var læst inni í fangaklefa. Hennar bíður yfirheyrsla og kæra fyrir brot á lögreglusamþykkt.
Önnur kona var einnig til vandræða í austurborginni. Hún var í annarlegu ástandi og taldi að dópsalinn sinn hefði byrlað fyrir sér. Einnig sagði hún lögreglunni að fólk hefði ráðist á sig. Sjúkrabifreið mætti á vettvang.