Þar sem margir eru með steikur í matinn á áramótunum er ekki úr vegi að hafa fisk í forrétt til að létta aðeins á máltíðinni og hafa pláss fyrir aðalréttinn, eftirréttinn og kokteilana. Hér kemur uppskrift að einum góðum.
Þorskur í tómatbasilíku – undribúið þennan rétt daginn áður
fyrir 4
400 g þorskur
2 dl basilíka
¼ rautt chili-aldin
2 dl olía
2 msk. brauðrasp
1 tsk. steinselja, söxuð
½ hvítlauksgeiri, smátt saxaður
2 msk. olíla
1 lítill rauðlaukur, skorinn í strimla
8 kokteiltómatar
1 tsk. síróp
Skerið þorskinn í 4 jafna bita og maukið basilíku, chili-aldin og olíu í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Látið fiskinn í eldfast mót og setjið maukið yfir og látið standa yfir nótt. Blandið saman brauðraspi, steinselju og hvítlauk og sáldrið yfir fiskinn, ágætt að eiga smávegis til skrauts.
Hitið ofninn í 120°C. Setjið eldfasta mótið í ofninn og bakið í 10-15 mínútur. Á meðan fiskurinn er í ofninum steikið þá rauðlaukinn og tómatana upp úr olíu og hellið sírópinu saman við og steikið í 1-2 mínútur, kryddið með salti og pipar.
Látið fiskinn á fallegan disk og laukinn og tómatana yfir.
Uppskriftir / Theodór Smith
Texti / Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernudóttir
Myndir/ Hákon Davíð Björnsson