Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir Hjartagarðinn, torg á milli Hverfisgötu og Laugavegs, ekki bera nafn með rentu. Torgið hefur hlotið mikla gagnrýni en Vísir fjallaði fyrr í dag um hvernig torgið hafi staðið autt frá því að framkvæmdum lauk. Þar var áður garður sem iðaði að lífi flesta daga. Sá garður var kallaður Hjartagarðurinn en torgið sem þar er nú ber sama nafn.
Helgi Hrafn útskýrir nánar á Facebook:
„Þetta er ekki Hjartagarður. Hjartagarður er farinn og kemur ekki aftur. Þetta er Stéttargarður. Minnisvarðinn sem í dag er ranglega kallaðar Hjartagarður fær ekki hjartað til að slá, heldur stingur í það. Það var þegar iðandi mannlíf þarna sem var rifið upp með rótum, vegna þess að það þótti ekki nógu fucking fínt. Stéttargarður heitir hann.“
Hann bætir því svo við þetta sé ekki besta nafnið fyrir torgið. Það eigi annar maður. „Viðbót: Ríkharður Mýrdal Harðarson er reyndar með betra nafn á hann: Steinhjartagarður. Framvegis mun ég kalla hann það.“