Jóhann Helgi Heiðdal, doktorsnemi við Háskólann á Akureyri, var landi og þjóði til sóma í Danmörku fyrr í dag. Hann varð vitni af hrottaskap Dana í garð fatlaðs starfsmans í stórmarkaði á Amager, og gat ekki setið hjá aðgerðalaus.
Fréttablaðið greinir frá atvikinu. Jóhann var að versla í búðinni þegar hann veitir því athygli að fauti við afgreiðsluborðið hafði hent öllum kveikjum sem þar voru til sölu á gólfið. Jóhanni sagði hingað og ekki lengra þegar danski ruddinn fór að skipa starfsmanninum, sem var bæði ungur og fatlaður, að tína þetta upp.
„Ég varð alveg brjálaður og fleygði þessum gæja út. Svo tíndi ég dótið upp fyrir strákinn sem var nánast grátandi,“ segir Jóhann við Fréttablaðið og bætir við að svona dónaskapur við starfsfólk sé því miður allt of algengur.