Margir íbúar höfuðborgarsvæðisins og víðar vöknuðu um hálf sjö leytið í morgun en þá reið yfir öflugur jarðskjálfti að stærðinni 4,7. Stöðug skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga í nótt og hafa mælst um 700 jarðskjálftar frá miðnætti. Að sögn náttúruvásérfræðings eru enn engin merki um gosóróa.
Í samtali við ruv.is segir Salóme Jórunnar-Bernharðsdóttir náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni að skjálftinn í morgun hafi átt upptök sín norðaustur af Fagradalsfjalli. Fyrstu tölur hafi bent til að hann væri um 4,9 á stærð. Allnokkrir skjálftar stærri en fjórir hafa einnig mælst í nótt. Þá segir jafnframt í fréttinni:
Rétt fyrir klukkan fimm mældist skjálfti af stærðinni 4,4 en í aðdraganda hans mældust fáeinir af stærðinni milli tveir og þrír. Milli klukkan fimm og sex mældust öllu minni og færri skjálftar en fyrr í nótt samkvæmt því sem fram kemur á vef Veðurstofunnar.
Jarðskjálfti af stærðinni 4,3 reið yfir þegar klukkan var tæpan stundarfjórðung gengin í fjögur. Hann átti upptök sín við suðurenda Fagradalsfjalls og fannst víða. Klukkan nítján mínútur fyrir fjögur varð skjálfti af stærðinni 4,2 norðvestur af fjallinu Þorbirni.
Þess skjálfta varð vart á Suðurnesjum. Stærsti skjálftinn í yfirstandandi hrinu er 5,4 sem varð um klukkan sex í gær og olli nokkrum usla og uppnámi í Grindvík sem lék á reiðiskjálfi. Þar hrundu hlutir úr hillum og munir skemmdust.