Flokksgæðingurinn Brynjar Níelsson er búinn að fá nóg af íslenskum fagurbókmenntum. Hann segir í einlægri færslu að rithöfundar hér á landi hafi fæstir neitt merkilegt að segja lengur. „Er að mestu hættur að lesa fagurbókmenntir enda hafa flestir íslenskir rithöfundar ekkert að segja og lítt næmir fyrir samfélaginu sem þeir lifa í,“ skrifar Brynjar sem starfar sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra eftir að kjósendur höfnuðu honum sem þingmanni.
Óljóst er hvað veldur óþoli hans gagnvart rithöfundum en hann segist í færslunni lesa sagnfræðibækur og nýtur þess að horfa á kvikmyndir. Brynjar ber svo fram þá játningu að hann sé „ódannaður og mikið flón“. Víst er að einhverjir fallast á þá skilgreiningu hans og telj aþað augljóst …