Afmælisbarn dagsins er einn þekktasti næringafræðingur landsins, Elísabet Reynisdóttir. Eru nú liðin 54 ár frá fæðingu hennar.
Elísabet hefur hjálpað landanum með námskeiðum, ráðgjöf en hún hefur skrifað greinar í dagblöð og á doktor.is ásamt því að vera ráðgjafi í útvarpi, til að mynda á K100 og á Bylgjunni.
Mannlíf heyrði í Elísabetu og spurði hvort og þá hvernig hún ætlaði að halda upp á afmælið.
„Er að vinna á Vagninum á Flateyri og á leiðinni þangað að undirbúa kvöldið. Afmælisdagurinn verður rólegur, held upp á hann síðar,“ svaraði Elísabet en hún hefur verið með matarvagn á Flateyri í sumar.
Hvað er svo á döfinni á næstunni hjá afmælisbarninu?
„Ég er sem sagt á Flateyri að kokka á Vagninum og hef verið hér í sumar, þetta sumar er búið að hafa allar flækjur sem eitt ævintýri býður upp á. Nú er að klára ágúst á Vagninum og koma aftur suður og byrja aftur að vinna sem næringarfræðingur í Heilsuvernd.“
Mannlíf óskar Elísabetu innilega til hamingju með afmælið!