- Auglýsing -
Hrafn Jökulsson, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri, er einhver öflugasti baráttumaður Íslendinga þar sem kemur að skák og gæsku í garð íslenskrar náttúru. Alkunna er að hann skákvæddi Grænland og fór í ótal heimsóknir til að breiða út boðskapinn. Undanfarin ár hefur hann af sama eldmóði staðið í fararbroddi við að breinsa fjörur landsins.
Í sumar varð kappinn fyrir því áfalli að greinast með krabbamein í hálsi. Hann tekur þann slag af æruleysi og sama krafti og annað og nefnir óvættinn Surtlu. Á sama tíma og Hrafn er í geislameðferð er hann önnum kafinn við að birta á Facebook minningar frá fjölbreyttu lífshlaupi sínu …