- Auglýsing -
Leitað var að sjósundsmanni frá því í gærkvöldi við Langasand á Akranesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á svæðið ásamt tveimur skipum og björgunarsveitarfólki frá Björgunarfélagi Akraness.
Sjósundsmaðurinn fannst svo látinn eftir mikla leit. Ásmundur Kr. Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, greinir frá og segir að málið sé til rannsóknar.