Óttar Guðmundsson geðlæknir gerir dekur Sjálfstæðismanna við þann gjaldþrota Skúla Mogensen að umfjöllunarefni í Fréttablaðinu. Skúli hefur risið upp eftir að flugfélagið Wow-Air fór á hausinn með tilheyrandi skaða fyrir þjóðina. Nú hefur Skúli risið upp að nýju með sjóböðum í Hvammsvík í Hvalfirði. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins þáðu boð um veitingar og bað til að fagna upprisu auðmannsins. Óttar rifjar upp fyrri afrek ráðherranna svo sem sóttvarnabrot Bjarna Benediktssonar í Ásmundarsal.
„Á dögunum fór þessi sami ráðherra ásamt tveimur meðráðherrum í annað partí í Kjósinni. Skúli athafnamaður Mogensen var að opna sjóböð í Hvammsvík þar sem fallegt fólk getur lagst í heitt saltvatn fyrir tæpar áttaþúsund krónur, skrifar Óttar og rifjar upp þegar WOW fór á hausinn og atvinnulífið á Suðurnesjum var slegið í rot og ríkissjóður tapaði milljörðum. „Þar var aðallega við Skúla að sakast sem hagaði sér alltaf eins og sjálfmiðað barn í hlutverkaleik“.
„Er það virkilega hlutverk ráðherra að hjálpa gjaldþrota auðmanni að auglýsa nýtt fyrirtæki í ferðamannabransanum? Við skulum vona að böðin fari ekki sömu leið og vá-flugið sem brotlenti þrátt fyrir litagleði, snobb og flottheit. En þá verða Sjálfstæðisráðherrarnir væntanlega komnir í annað bað,“ skrifar Óttar geðlæknir …