Talsvert var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en ölvun var áberandi.
Í miðbænum barst tilkynning frá dyravörðum skemmtistaðs en þar var aðili að reyna að komast inn, vopnaður hnífi og hnúajárni. Afhenti maðurinn lögreglunni vopnin og var hann kærður fyrir vopnalög.
Þá var tilkynnt um yfirstaðna líkamsárás á skemmtistað í miðbænum. Árásáraðilinn hafði þá rifið í hár stúlku og slegið hana í hnakkann. Ekki sagði lögreglan hvort aðilinn hafi verið handtekinn eður ei.
Einnig var tilkynnt um slagsmál á Ingólfstorgi en þar reyndust tveir menn ráðast á einn en hann var með lítilsháttar áverka eftir árásina.
Aukreitis var sótölvaður einstaklingur fluttur á slysadeild til skoðuna en hann hafði dáið áfengisdauða á veitingastað í miðbænum.
Einn einstaklingur virtist eiga við drykkjuvandamál að stríða en hann hóf að hella bjór yfir stelpur í miðbænum. Stelpurnar gerðu engar kröfur þegar lögreglan mætti á vettvang og var aðilanum vísað á brott.
Þá voru nokkir teknir grunaðir um akstur undir áhrifum.
Tilkynnt um aðila að aka undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan stöðvaði bifreiðina og var ökumaður handtekinn og fluttur á lögreglustöðina. Laus að lokinni sýnatöku.
Ökumaður óskaði eftir aðstoð lögreglu eftir að hann ók á mannlausa bifreið sem var ólöglega lagt.