Hjalti Björnsson, leiðsögumaður og þaulreyndur björgunarsveitamaður, deilir á Facebook-síðu sinni mynd af gljúfri sem hann segir að verði vinsælasti staður Íslands innan skamms. Myndin er tekin á Austurlandi, nánar tiltekið í Múlagljúfri.
Hjalti skrifar: „Múlagljúfur verður vinsælasta Instagram myndefnið 2023. Þangað munu 200.000 manns leggja leið sína og pósta þaðan 500.000 myndum. Þið heyrðuð þetta frá mér. #mulagljufur“
Að sjálfsögðu eru sumir forvitnir hvar þetta gljúfur er á landinu og hvernig megi komast þangað. Hjalti svarar: „Akandi , fært öllum bílum“. Vinur hans deilir svo kortinu sem sjá má hér fyrir neðan. Svo nú er ekkert því til fyrirstöðu að slá í gegn á Instagram.