Áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson var handtekinn fyrir þrjár alvarlegar líkamsárásir á Spáni í marsmánuði. Svo herma heimildir Mannlífs og situr hann nú í fangelsi í Malaga-borg í Andalúsíuhéraði. Mannlíf setti sig í samband við fangelsið þar sem Kristján Einar er vistaður en þar fékkst aðeins staðfest að hann væri þar en engar frekari upplýsingar um líðan eða stöðu mála.
Eftir því sem Mannlíf kemst næst fær Kristján Einar, sem oft er kallaður Kleini, hvorki að vera með síma né tölvu í fangavistinni. Hann ber eigið fanganúmer og fær aðeins að hringja nokkur símtöl í viku og þá helst innanlandssímtöl.
Nánasta fjölskylda Kristjáns hefur dvalið í Malaga frá því að hann var handtekinn fyrir fimm mánuðum síðan. Í samtali við Mannlíf er ljóst að nánasta fjölskylda hans vill ekki að málið fari hátt og þar hefur verið ákveðið að ræða málið ekki opinberlega fyrir en það er afstaðið.
Eins og áður sagði var Kristján Einar handtekinn á Spáni í mars síðastliðnum og gengu þá myndbönd á samfélagsmiðlum hérlendis sem sýndu hann í handjárnum. Kristján er 24 ára gamall og var um tíma trúlofaður Svölu Björgvinsdóttur söngkonu.
Kristján opnaði sig meðal annars um fortíð sína á samfélagsmiðlum. Sagðist hann vera venjulegur maður á Instagram við það tilefni:
„Ég er ósköp venjulegur maður. Ég á barn. Ég vinn sem sjómaður. Ég á mína fortíð sem að hluta er óuppgerð. Ég kynntist stúlku. Stúlkan varð kærasta mín. Kærasta mín er farsæll listamaður og verk hennar vekja áhuga. Fjölmiðlar fjalla um hana og það sem hún gerir. Ég á því ekki venjast og mín verk hafa til þess dags ekki vakið athygli fjölmiðla eða flesta þeirra sem þetta lesa. Það hefur breyst,“ skrifaði Kristján á samfélagsmiðlinum í desember síðarliðnum.
„Ég hef markvisst unnið í sjálfum mér og náð árangri. Ég er ekki kominn á leiðarenda tek aðeins einn dag í einu. Ég hlaut á síðasta ári dóm. Ég undi ekki niðurstöðu þess dóms og hef áfrýjað niðurstöðu hans til Landsréttar. Þeirra niðurstöðu bíð ég. Af tillitsemi við aðila læt ég vera að fjalla sérstaklega um málið. Þeir sem hafa á því áhuga geta kynnt sér málið og um leið varnir mínar.“