Furðuleg uppákoma var í kringum Hveragerðiskirkju þegar bón ættingja látinnar sómakonu um að séra Gunnar Björnsson myndi jarðsyngja hana var miskunnalaust hafnað. Engin skýring hefur fengist frá Agnesi Sigurðardóttur biskupi um það hvers vegna prestinum var úthýst. Biskupinn lét yfirmann fasteigna Þjóðkirkjunnar svara fyrir gjörninginn. Sá útskýrði málið þannig viku eftir jarðarförina að séra Gunnar væri ekki „í þjónustu“. Erfitt er að skilja þau orð öðruvísi en svo að hann sé á eftirlaunum og þess vegna bannfærður. Hið skondna er að annar eftirlaunaprestur, Önundur Björnsson, fékk umsvifalaust leyfi til að annast athöfinina. Hermt er að því hafi einnig verið hafnað af yfirvöldum kirkjunnar að séra Gunnar flytti minningarorð um hina látnu. Einhverjir rekja illskuna til þess að Gunnar þjónaði á sínum tíma í Bolungarvík, eins og Agnes biskup seinna. Hermt er að hann hafi gjarnan verið kallaður til í preststíð hennar til að jarðsyngja í Bolungarvík og það hafi farið fyrir brjóst Agnesar sem engu gleymi …