Samherjamenn undir forystu Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra hafa verið ötulir við að halda því á lofti að Jóhannes Stefánsson uppljóstrari sé ekki marktækur þar sem hann hafi verið óreglumaður þegar hann starfaði fyrir félagið í Namibíu. Hann hafi notað kókaín og aðra vímugjafa og þannig verið með skerta dómgreind. Í Stundinni kemur fram að einn aðalsakborninganna í Samherjamálinu í Namibíu, Tamson Hatuikulipi, tengdasonur fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, upplýsti fyrir dómi að hann kannist ekki við óreglu Jóhannesar uppljóstara á þeim tíma sem þeir áttu í samskiptum. Tamson hefur verið í fangelsi frá því Samherjamálið var afhjúpað í samstarfi Kveiks, Stundarinnar og Wikileaks fyrir þremur árum.
Það vekur athygli að á Íslandi er fátt að gerast í rannsókn á Samherjamönnum. Aftur á móti er Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Akureyri, á útopnuðu á eftir þeim fjölmiðlamönnum sem upplýstu um skærhernað Samherjamanna á hendur Helga Seljan fjölmiðlamanni og annarra sem höfðu bent á meinta glæpi stjórnenda risafyrirtækisins …