Vítalía Lazareva hefur í sumar dvalið á Ítalíu og ef marka má Instagram-reikning hennar þá hefur hún blómstrað í hlýrri Miðjarðarhafssólinni. En lífið getur leikið mann grimmt þó sólin skíni.
Á Instagram kveðst Vítalía vera með böggum hildar. „Umkringd fólki en samt einmanna,“ skrifar hún. vera Sú stutta yfirlýsing sýnir glögglega að lífið í sólarlöndum er ekki eintóm sæla, enda erfitt að aðgreina vini og viðhlægjendur á ströndinni.
Þrátt fyrir þetta virðist Ítalíuferðin hafa gert henni gott og má því búast við að hún komi til baka tilbúin í slaginn.
Líkt og flestir vita þá upplýsti hún þjóðina um meint kynferðisbrot þriggja eldri manna í heitum potti í byrjun ársins. Hún hefur nú kært mennina, sem svo kærðu hana til baka fyrir upplognar sakir.