Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hyggst bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. Þing sambandsins fer fram í lok október og verður nýr formaður þá kosinn.
Kjarninn greinir frá þessu. Ragnar er sagður hafa kynnt þessa ákvörðun fyrir starfsfólki VR á fundi í morgun.
„Ef að viljinn til breytinga nær til dæmis inn í iðnaðarmannasamfélagið og raunverulegur vilji er til að rífa þetta upp og gera þetta að því afli sem þetta apparat á að vera, þá er það mjög spennandi verkefni að taka að sér að leiða,“ hefur Kjarninn eftir Ragnari.