Alvarleg teikn á lofti – áskorun til íslenskra stjórnvalda er yfirskrift greinar sem Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi ritar.
Byrjar svona:
„Stöðugar fréttir af auknu hatri og óþoli í garð hinsegin fólks á Íslandi eru alvarleg teikn á lofti sem bregðast verður við. Í morgun var meðal annars fjallað um áhyggjur Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar af stöðu hinsegin barna og ungmenna sem hafa í auknum mæli verið að segja frá alvarlegum hótunum og aðkasti innan veggja skóla.“
Stella segir að „mannréttindi eiga undir högg að sækja um allan heim og því gríðarlega mikilvægt að spyrna fótum við þeirri þróun. Eitt mikilvægasta vopnið gegn fordómum og fáfræði er aukin fræðsla, upplýst umræða og samheldni samélagsins um að standa vörð um ákveðin gildi á borð við jafnrétti, frelsi og mannréttindi.“
Einnig að „mannréttindi jaðarsettra hópa hafa sjaldnast dottið af himnum ofan, kynslóðir eftir kynslóðir börðust fyrir aukinni viðurkenningu og mannvirðingu. Fyrir skilningi á því að við erum ólík. Mörg lönd hafa náð góðum árangri í þessu samhengi á meðan önnur eiga enn langt í land. Ísland er eitt þeirra landa sem hefur sett mannréttindi sem leiðarstef í innanríkis- og utanríkisstefnu sinni og náð góðum árangri. Allt frá Vigdísi Finnbogadóttur yfir til Jóhönnu Sigurðardóttur,“ sem Stella telur að séu „konur sem ruddu svo sannarlega brautina á heimsvísu í nafni íslenskrar þjóðar.
Táknmyndir um möguleika, sem ég veit að margar þjóðir líta hýru auga að verði að veruleika einn daginn hjá þeim líka.“
Og bætir við:
„Þess vegna er svo sláandi að lesa fréttir af aukinni tíðni hatursorðræðu og glæpa hér á landi í garð hinsegin fólks. UN Women á Íslandi ákvað að varpa ljósi á stöðu hinsegin fólks á heimsvísu með Fokk ofbeldi herferðinni sem hófst á dögunum með sölu FO vettlinga. Allur ágóði af sölunni mun renna í hinsegin sjóð UN Women sem nú stendur tómur. Við tókum þá ákvörðun að samhliða því að safna fjármunum fyrir fjársveltan sjóð ytra, væri einnig mikilvægt að hreyfa við hlutunum hér heima. Enda hefur umræðan um bakslag verið hávær síðustu mánuði.
Við hófum því undirskriftarátak í því skyni að hvetja almenning til að taka skýra afstöðu með réttindum hinsegin fólks og skora á íslensk stjórnvöld að bregðast við því bakslagi í hinsegin baráttunni sem virðist hafa skotið rótum í samfélaginu okkar. Íslensk stjórnvöld bera ábyrgð á því að tryggja að löggjöf sé verndandi fyrir jaðarsetta hópa ásamt því að stuðla að forvirkum aðgerðum í formi fræðslu og upprætingu fordóma. Að sama skapi hvetjum við stjórnvöld til að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að aðrar þjóðir taki sér Ísland til fyrirmyndar og tryggi lagaleg réttindi hinsegin fólks. Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt og núna að Ísland láti mannréttindarödd sína heyrast.“
Stella færir í tal að „UN Women á Íslandi hvetur almenning til að skrifa undir þennan undirskriftarlista, taka þannig afstöðu með mannréttindum og þrýsta á íslensk stjórnvöld að tryggja virka hinseginfræðslu á öllum skólastigum um allt land um fjölbreytileikann og mannréttindi líkt og námsskrá segir til um og ungt fólk kallar eftir. UN Women á Íslandi mun afhenda Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barnamálaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Guðmundi Inga Guðbrandssyni félags- og vinnumarkaðsráðherra undirskriftarlistann að söfnun lokinni. Ég hvet þig til að taka afstöðu og skrifa undir hér.