Bára nokkur, íbúi í Langholtshverfi, segist ekki átta sig á því hvað maðurinn hafi ætlað sér sem áreitti dóttur hennar og vinkonu í Langholtshverfinu um helgina. Viðkomandi reyndi að lokka þær upp í hvítan bílinn með því að bjóða þeim múffukökur. Stúlkurnar urðu mjög hræddar, forðuðu sér og hringdu svo í lögregluna.
Bára segir frá atvikinu í hópi hverfisbúa á Facebook. Við skulum gefa henni orðið:
„Maður af erlendum uppruna a hvítum bil stoppaði við alfheimana rétt við olis í dag og vildi að dottir min og vikona hennar kæmu til sín í átt að bílnum og fengu muffins köku hjá honum, þær neituðu og þá varð hann pirraður og sagði þeim að snerta kökurnar!!!“, segir Bára og bætir við:
„Veit ekki hvað þessi maður hefur ætlað sér en þær voru mjög hræddar og brugðust rétt við, þær hringdu svo sjálfar á lögregluna!!!“