- Auglýsing -
Hanna Rún Bazev Óladóttir og eiginmaður hennar Nikita kepptu í gær á Evrópumeistaramóti í dansi og náðu frábærum árangri.
Hanna Rún og Nikita enduðu í 4. sæti á Evrópumeistaramótinu í dansi í flokki professional í gær. Hanna birti fallega ljósmynd af þeim hjónum á Instagram eftir keppnina og eftirfarandi texta:
„4.sæti á Evrópumeistaramóti í flokki professional í dag!!!👏🏻🇮🇸 Takk æðislega allir fyrir stuðninginn og fallegu skilaboðin!!!RISA knús til ykkar allra!!!“
Mannlíf óskar hjúunum innilega til hamingju með árangurinn!