Lögreglu barst í gærkvöldi tilkynning um líkamsárás á veitingastað í hverfi 108. Tveir voru handteknir á vettvangi en ekki liggur hvort þolandi hafi hlotið alvarlega áverka við árásina. Í miðbænum óskaði kona eftir aðstoð lögreglu þegar hún kom að bílnum sínum. Sá hún þá að maður hafði farið inn í bílinn og sofnað í aftursætinu. Lögregla vakti manninn og vísaði honum út.
Fyrr um kvöldið barst lögreglu tilkynning um þjófnað í verslun. Öryggisvörður hljóp á eftir manninum sem minnsti þvottaefni og símann sinn á leiðinni. Komst hann undan með nokkrar vörur sem ekki hafði verið greitt fyrir. Þá var bifreið stöðvuð í Árbæ. Ökumaðurinn var aðeins 17 ára gamall og er hann grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Kemur fram í dagbók lögreglu að málið hafi verið unnið með aðkomu foreldra og tilkynningu til Barnaverndar.