- Auglýsing -
Hér kemur uppskrift að gómsætri köku þar sem kúrbítur er uppistaðan. Bragðgóð og seðjandi.
Kökur:
1 kúrbítur
2 dl sykur
2 egg
2 ½ dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 msk. birkifræ (fæst m.a. í TIGER)
6 msk. smjör
1 msk. sítrónubörkur
1 msk. sítrónusafi
Hitið ofninn í 160°C. Afhýðið kúrbítinn og rífið niður með fínu rifjárni. Setjið hann í sigti og sigtið umfram vökva frá. Þeytið sykur og egg saman. Bætið þurrefnunum út í og þar á eftir smjöri, sítrónusafa og berki. Setjið í form og bakið í 50-60 mín.
Krem
2 ½ dl flórsykur
2 msk. sítrónusafi
- Auglýsing -
Blandið öllu saman og hellið yfir kökuna.
Umsjón / Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Mynd / Rut Sigurðardóttir
Stílisti /Helga Sif Guðmundsdóttir