Tómas Guðbjartsson, hjartalæknir og útivistarmaður, hefur undanfarna daga verið á ferðalagi upp hæsta fjall heims, Everest. Hann hefur lýst ferð sinni á Facebook. Sérstaklega hefur hann staldrað við heilbrigðisþjónustu á þessu svæði þar sem fjöldi manns fer um á hverju ári til að kljást við fjallið mannskæða.
Lýsingar Tómasar af ferðalaginu eru óborganlegar eins og hans er von og vísa. Hann fór upp í grunnbúðir en einhverjir telja að hjartalæknirinn stefni á efsta tind Everest með vorinu. Sjálfur er hann þögull um endanleg áform sín og hvort hann sé að undirbúa ferð á toppinn. Aðspurður um það atriði svaraði hann einfaldlega „no comment“ ….