- Auglýsing -
Stórar perlur, keðjur og krossar prýddir skrautsteinum voru áberandi á sýningu Chanel á tískuvikunni í París þar sem nýjasta haust- og vetrarlína tískuhússins var frumsýnd.
Fallegar töskur með perlum og steinum voru einnig áberandi á meðan skórnir voru tiltölulega látlausir miðað við Chanel.
Virginie Viard, yfirhönnuður hjá Chanel, lýsti nýju línunni sem rómantískri. Hún sagði að öll notkun skrauts væri úthugsuð og tók fram að línan væri án óþarfa glingurs.
Myndir / EPA