Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaforingi sakar Morgunblaðið um lygar.
Í nýrri færslu segir Gunnar Smári frá könnun sem Maskína gerði þar sem fylgi stjórnmálaflokka er skoðað. Maskína sagði enga breytingu á fylgi Sósíalistaflokks Íslands milli mánaða en Morgunblaðið segir 1,5% lækkun að sjá hjá flokknum. Það kallar Gunnar Smári lygar:
„Maskína gerir könnun og skrifar um Sósíalista: Fylgi Sósíalista í ágústmánuði var rúmlega 7% og hafði aðeins einu sinni mælst svo hátt, en er nú í september með tæplega 7%, sem er nær engin breyting.