Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi rétt í þessu frá sér eftirfarandi tilkynningu:
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjand mynd og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhver þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hin sömu einnig vinsamlegast beðin um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]
Þótt myndin sé óskýr má ætla að hún geti gefið vísbendingar um hver maðurinn er.