Einkaþjálfarinn Björn Þór Sigurbjörnsson segir mikilvægt að taka heilsuna föstum tökum á tímum sem þessum, sama hversu erfitt það kann að virðast í ljósi aðstæðna.
„Hvernig við bregðumst við er algjörlega í okkar eigin höndum,“ skrifar Björn í sinn nýjasta pistil. Hann segir mikilvægt að fólk setji sér markmið og svo gefur hann góð ráð.
Hann bendir á að nauðsynlegt sé að fara varlega af stað ef líkamsræktin hefur þurft að sitja á hakanum undanfarið. „Við þurfum að stíga varlega til jarðar og vanda okkur við val á æfingum, ef við erum ekki búin að vera að hreyfa okkur og æfa þá geta ýmsar æfingar gert meira ógagn en gagn. Það skulum við hafa hugfast,“ skrifar Björn og minnir á að góðir hlutir gerast hægt. „Við þekkjum það að það gefur ekki góða raun að hamast eins og ljón í einhverju átaki,“ útskýrir Björn og minnir á að sú aðferði endar gjarnan með að fólk fái ógeð á líkamsrækt.
Hann hvetur fólk til að einbeita sé að því sem skiptir máli en ekki töluna á vigtinni eða sentimetra.
Hann gefur nokkur góð ráð í sínum nýjasta pistil sem gæti hjálpað þér við að halda í neistann og metnaðinn þegar kemur að líkamsrækt og heilsu.
Lestu pistil Björns í heild sinni hérna.