Lögreglu barst tilkynning frá hótelstarfsmanni í Hlíðunum í gærkvöldi. Hafði starfsmaðurinn áhyggjur vegna mikils hávaða frá fólki sem öskraði ítrekað hvort á annað. Hljómaði fólkið drukkið og fór lögregla á vettvang til þess að athuga málið. Skömmu síðar hafði íbúi í miðbænum samband við lögreglu vegna tónlistarhávaða sem barst frá samkomusal í hverfinu.
Undir morgun vaknaði íbúi í Kópavogi við þjófavarnarkerfi sem hann taldi koma frá bílageymslu í húsinu. Lögregla mætti á vettvang og hafði samband við eiganda bílsins sem tók málið í sínar hendur og slökkti á hávaðanum. Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Annar þeirra viðurkenndi neyslu fíkniefna fyrr um daginn og var hann fluttur á lögreglustöð til þess að taka úr honum blóðsýni. Var hann látinn laus að því loknu. Sá seinni reyndist drukkinn á ótryggðum bíl. Þá sinnti lögregla eftirliti með umferð á Vínlandsleið. Ökumenn voru stöðvaðir og kennt á ljósabúnað bifreiða sinna.